Gallerí Hornið, 9. maí

Raddir fólksins stóðu fyrir "Stjórnlagakaffi" á sunnudagseftirmiðdögum í maí. Þangað var boðið sérstökum gesti í hvert sinn sem flutti erindi, en fyrirspurnir og umræður fylgdu í kjölfarið.

Annar gesturinn var Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, dr. í stjórnsýslufræði, og kallaði hún erindi sitt "Brást ríkið eða brugðust ráðamenn: Hvað getur smáþjóð gert þegar ráðamenn bregðast?". Á eftir erindinu voru fyrirspurnir og innlegg frá öðrum gestum.

Bæði erindið og umræðurnar eru aðgengilegar á bloggsíðu Láru Hönnu Einarsdóttur:
http://blog.eyjan.is/larahanna/2010/05/22/sigurbjorg-i-stjornlagakaffi