Raddir fólksins standa fyrir "Stjórnlagakaffi" á sunnudagseftirmiðdögum í maí. Þangað er boðið sérstökum gesti í hvert sinn sem flytur erindi, en fyrirspurnir og umræður fylgja í kjölfarið. Fyrsti gesturinn var Páll Skúlason, prófessor í heimspeki, og fjallaði erindi hans "um nauðsyn þess að rækta ríkið". Enn fremur svaraði Páll spurningum og vangaveltum annarra gesta og var mjög fróðlegt að kynnast hans skoðunum. Bæði erindið og umræðurnar eru aðgengilegar á bloggsíðu Láru Hönnu Einarsdóttur: http://blog.eyjan.is/larahanna/2010/05/05/kaffispjall-um-stjornlagathing-og-stjornarskra/ |